MF 25'

Massey Ferguson mest selda dráttarvélin 2025

Óskum öllum gleðilegs nýs árs og þökkum öllum fyrir ánægjulegu viðskiptin og samskiptin á árinu 2025 og göngum full tilhlökkunar inní árið 2026
Massey Ferguson var mest selda dráttarvélin 2025 yfir 100hp í annað sinn á sl 3 árum(vorum í öðru sæti í fyrra) með 18 nýskráðar vélar eða 19,78% markaðhlutdeild. Það er í takti við það sem er að gerast hjá nágrönnum okkar á norðurlöndunum þar sem bændur og verktakar treysta á Massey Ferguson að fá þrautreynd gæði á hagstæðum verðum fyrir sín verkefni.
Heyvinnutækin frá Massey Ferguson hafa einnig slegið í gegn hjá eigendum sínum auk þess sem fyrsti nýji Massey Ferguson skotbómulyftarinn kom til landsins. MF hefur lagt mikið í vöruþróun og rannsóknir til að bjóða heildarlausnir fyrir bændur og verktaka með áreiðanleika, afköst og aukinni hagkvæmni er að leiðarljósi.
Massey Ferguson er einnig mest innflutta dráttarvélamerkið þegar kemur að notuðum vélum 4ja árið í röð.
Eigum vélar á lager til afhendingar strax og einnig er rétti tíminn núna til að panta þér vél eins og þú villt hafa hana svo hún verði komin fyrir sumarið!
Sannast hið fornkveðna- Ávalt er Ferguson fremstur………