Massey Ferguson 5S115 Efficient

Massey Ferguson býður hér lágnefja traktor með einstöku útsýni við alla ámoksturstækjavinnu, uppsettan á einfaldan máta fyrir stjórnandan og eru öll stjórntæki í seilingarfjarlægð þar sem fljótlegt og þægilegt er að grípa til þeirra. Vélin er lipur og þægileg í notkun, afar eyðslugrönn

Helsti búnaður:

  • Agco-Power Stage V 115 hesafla 4 cylender 4 ventla 4,4 Lítra mótor sem skilar 460 Nm torque við 1500 snú/min. Þrautreindur mótor gerður fyrir nýjasta mengunarstuðulin Stig 5.
  • Vatnsskilja í eldsneytiskerfi. Vélarblokkarhitari og sjálfvirkur straumrofi á rafgeymi

Skipting

  • Dyna4 AutoDrive skipting með vali um handskiptingu eða sjálfskipt án kúplunar, stjórnað með Multipad stjórnpinnanum staðsettum í Multi-function sætisarminum eða stjórnstöng vendigírs vinstra megin við stýrishjól. Einnig í stýripinna ámoksturstækja. 4 gírar með 4 vökvaþrep í hverjum, 16×16 hraðastig. 43 km aksturshraði. Ökumaður stillir snerpu og mýkt við skiptingu.
  • Vökvavendigír með breitanlegum upphafsgírum og er val um sama eða sinn hvorn gírinn áfram-aftruábak. Stillanleg mýkt og ákveðni í viðbragði.
  • Auto-stop sjálfvirk kúplun þegar stigið er á bremsupedala og kúplar vélin saman þegar bremsupedala er sleppt. Notkun kúplingspedala við stöðvun vélar óþörf. Sérlega henntugt í ámoksturstækjavinnslu.

Vökvakerfi

  • 110 Lítra álagsdtýrð vökvadæla með LS úrtökum að aftan ásamt bakflæði tengi, 4 tvívirkar vökvasneiðar aftan á vél, 2 rafstýrðar/forritanlegar og 2 barkastýrðar, 6000 kg lyftigeta á þrýtengibeisli, cat3 opnir beislisendar
  • Vökvavagnbremsuúttak með ABS tengi, tveggja línu með notkunnarmöguleika á einnar línu vagnbremsu

Húsið

  • Rúmgott ökumannshús með miklu útsýni til allra átta. Vel hljóðeinangrað (aðeins 69dB) og gott aðgengi. „Visio roof“ með glerþaki fyrir ámoksturstækjavinnu
  • Fjöðrun á ökumannshúsi
  • Loftfjaðrandi Grammer ökumannssæti með snúning og farþegasæti með öryggisbeltum
  • Miðstöð og loftkæling. Auka gólfhitari við hægra framhorn á húsi
  • Útvarp með CD, MP3, USB og Bluetooth tengimöguleikum
  • Öflugur LED vinnuljósapakki og auka ökuljós á hliðum. Tvö gul snúningsljós
  • Stórir og útdraganlegir víðsjá speglar með hita og rafmagni
  • Afturrúðuþurrka ásamt rúðuvökvun
  • Pólar fyrir straumúttak á rafgeymi „jump start“

Ýmislegt

  • Lyftutengdur dráttarkrókur með vökvaútskoti
  • 3ja hraða aflúttak 540/540e/1000. Stjórntakki á afturbretti
  • Dekk framan 480/65R24 og aftan 600/65R34 á heilsoðnum felgum
  • Breið frambretti á snúning, Breið afturbretti(2,28cm)
  • MF FL.4124 Ámoksturstæki rafstýrð með stýripinna í sætisarmi, 3ja svið, vökvadempun, Euro ramma og vökvahraðtengi á gálga
  • Íslensk eigandahandbók

Heimasíða Massey Ferguson 5S

 

Nánari lýsing

Nánari lýsing

Senda fyrirspurn um þessa vél

Senda fyrirspurn um þessa vél